Vorhátíð Njarðvíkurskóla

Föstudaginn 30. maí í frábæru veðri var haldin vorhátíð Njarðvíkurskóla.

Hátíðin hófst á slaginu 10:00 þegar farið var í skrúðgöngu í nágrenni skólans. Í framhaldi af því mættu BMX Brós og og voru með frábæra sýninigu fyrir nemendur skólans og aðra gesti.

Vel var mætt á hátíðina og var gaman að sjá hve margir forráðamenn nemenda mættu til þess að eiga góðan dag með börnum sínum í skólanum. Þá voru margar aðrar stöðvar í boði í kringum skólann þar sem nemendur gátu skemmt sér. Einn af hápunktunum var litlahlaup þar sem Brunavarnir Suðurnesja mættu og sprautuðu yfir nemendur sem vakti mikla lukku. Einnig mætti lögreglan á svæðið og aðstoðaði við skrúðgönguna og voru svo á svæðinu þar sem nemendur gáttu hitt þær og spjallið við. 

Í lok vorhátíðar var síðan slegið upp pylsuveislu þar sem foreldrafélag Njarðvíkurskóla mættu og bauð öllum sem mætt voru í pylsur.

Með þessari frétt má sjá ríkulegt myndasafn þar sem sést hve vel allir skemmtu sér.