Fréttir

Njarðvíkurskóli heilsueflandi grunnskóli

Skólaárið 2020-2021 hóf Njarðvíkurskóli vegferð sína í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli. Hugmyndin um Heilsueflandi grunnskóla er byggð á Ottawa-sáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um heilsueflingu. Heilsueflandi grunnskóla er ætlað að styðja skóla í að vinna markvisst að heilsueflingu í starfi sínu. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Verkefnið er einnig ætlað að styðja við grunnþátt menntunar heilbrigði og velferð sem er einn af grunnþáttum menntunar sem getið er um í Aðalnámskrá grunnskóla. Áhersluþættir verkefnisins eru átta talsins; nemendur, heimili, nærsamfélag, mataræði, hreyfing, öryggi, lífsleikni og geðrækt. Fyrsta árið er hugsað sem undirbúningsár en þá mun skólinn setja sér heildræna stefnu um áhersluþættina átta. Heilsustefnan verður byggð ofan á þá stefnu og gildi sem þegar eru til staðar í skólanum og fellur að mörgu leyti við þau markmið og áherslur sem lögð eru til grundvallar í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli.
Lesa meira

Öðruvísi Öskudagur á tímum Covid19

Almannavarnir í samvinnu við Embætti landlæknis og Heimili og skóla hafa tekið saman leiðbeiningar varðandi öskudaginn sem allir viðeigandi aðilar eru vinsamlega beðnir um að taka til sín og taka virkan þátt í því verkefni að halda góðan og gleðilegan en öðruvísi Öskudag á farsóttartímum. Gerum okkur dagamun í nærumhverfinu Höldum upp á daginn á heimavelli, í skólanum, frístundaheimilinu eða félagsmiðstöðinni. Mætum í búningum Brjótum upp á hversdagsleikann með því að mæta öll í búningum. Ungir sem aldnir. Endurvekjum gamlar hefðir Nú er tækifæri að endurvekja gamlar öskudagshefðir eins og að búa til öskudagspoka og slá köttinn úr tunnunni. Með sóttvarnir í huga að sjálfsögðu. Syngjum fyrir sælgæti Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja í hverfinu væri upplagt að foreldrafélög tækju upp á sína arma að halda utan um hvar sé hægt að koma og syngja fyrir nammi. Athugið að gæta fyllstu sóttvarna og gefið aðeins sér innpakkað sælgæti. Við erum öll almannavarnir!
Lesa meira

100 daga hátíð 1.bekkjar í Njarðvíkurskóla

Í tilefni þess að 1.bekkur Njarðvíkurskóla var búin að vera í 100 daga í skólanum þá var efnt til hátíðar. Nemendur föndruðu kórónur, töldu 100 gotterí í poka og fengu að borða það yfir skemmtilegri teiknimynd. Allir í 1.bekk skemmtu sér konuglega á þessum degi sem er stór áfangi á þeirra skólagöngu.
Lesa meira

Andlát - Lára María Ingimundardóttir

Lára María Ingimundardóttir starfsmaður Njarðvíkurskóla lést sunnudaginn 7. febrúar eftir baráttu við krabbamein. Lára hóf störf við skólann haustið 2017 og sá um aðstoð í matsal og gæslu bæði á almennum svæðum innan skólans sem og í frímínútum. Lára sinnti starfi sínu af einstakri jákvæðni og alúð. Njarðvíkurskóli vottar fjölskyldu Láru samúð sína og þakkar henni vel unnin störf og þann hlýhug sem hún sýndi skólanum alla tíð.
Lesa meira

Samtalsdagur 9. febrúar

Þriðjudaginn 9. febrúar er samtalsdagur í Njarðvíkurskóla. Vegna smitvarna munu viðtölin fara fram rafrænt í gegnum forritið Teams þar sem hægt verður að nota tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Þau viðtöl sem notast þarf við túlk eru tekin í skóla. Eins og fyrr þá óska forráðamenn eftir viðtalstíma hjá umsjónakennara í gegnum Mentor. Einnig geta forráðamenn óskað eftir viðtali við fag-, list- og verkgreinakennara sem einnig eru til viðtals þennan dag. Í viðtalinu verður farið yfir almennt gengi nemandans í skólanum og það námsmat sem lokið er á skólaárinu auk annars. Foreldrar nemenda í 3. 6. og 9. bekk fá senda heim foreldrakönnun og hvetjum við foreldra til að svara könnunni um leið eða fljótlega eftir að hún berst þeim. Niðurstöður viðhorfskönnunar eru mikilvægur hluti í sjálfsmati skóla og við notum ykkar svör til að gera gott skólastarf enn betra. Eins og áður segir þá fer bókun viðtala fer fram í gegnum Mentor þar sem forráðamenn bóka sjálfir viðtal á þeim tíma sem hentar þeim best. Þegar forráðamenn hafa skráð sig í viðtal þá fá þeir sendan tölvupóst með slóð á Teams fund. Líkt og tíðkast í foreldraviðtölum þá eru nemendur með foreldrum sínum í viðtalinu og þar sem mögulegt er, að hafa opið fyrir mynd. Opnað verður fyrir bókanir 3. febrúar kl. 00:01 og geta forráðamenn þá byrjað að bóka. Leiðbeiningar fyrir bókun viðtala fyrir forráðamenn má sjá hér í myndbandi frá Mentor https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM Hérna eru leiðbeiningar um hvernig á að tengjast fundinum. Mikilvægt er að vera búin að kynna sér það áður en viðtalstíminn hefst. Frístundaheimili skólans er opið á samskiptadaginn, bæði í skóla sem og Ösp frá kl. 8:15-16:15.
Lesa meira

Már Gunnarsson sendir nemendum Njarðvíkurskóla hvatningarmynband

Már Gunnarsson tónlistarmaður og afreksmaður í sundi, sendir nemendum Njarðvíkurskóla hvatningarmyndband í tengslum við verkefni sem Þorgrímur Þráinsson er að vinna með nemendum í skólanum. Verkefnið gengur út á að hvetja nemendur til lesturs og meginmarkmiðið er að auka ánægja nemenda á lestri. Már sem er fyrrum nemandi í Njarðvíkurskóla hvetur nemendur til lesturs og ekki síst til þess að nýta sér hljóðbækur.
Lesa meira

Starfsdagur / teachers work day / Dzień organizacyjny

Mánudaginn 25 . janúar er starfsdagur í Njarðvíkurskóla. Allir nemendur eiga frí þennan dag. Frístundaheimili yngri nemenda og frístund í Ösp er lokað þennan dag. -- Monday 25th. of January is a teachers work day in Njardvikurskoli. All students have a vacation this day. The after school program is closed this day. -- Poniedzialek 25. Styczen jest dniem pracy nauczyciela w Njardvikurskoli. Wszyscy studenci maja wakacje tego dnia. Program zajec pozalekcyjnych jest dzis zamkniety.
Lesa meira

Skólastarf frá áramótum samkvæmt nýrri reglugerð

Takmarkanir á skólahaldi verða rýmkaðar frá gildandi reglum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 1. janúar 2021 til og með 28. febrúar 2021. Helstu breytingar í grunnskólum eru að frá og með 4. janúar getum við boðið öllum nemendum upp á kennslu samkvæmt stundaskrá án takmarkana í rýmum eða í mötuneyti. Kennsla í valgreinum, hefst 11. janúar. Þetta þýðir að allir nemendur Njarðvíkurskóla mæta í skólann samkvæmt stundaskrá mánudaginn 4. janúar 2021 og frístundaheimilin verða opin til kl. 16.15 en ekki til kl. 15.30. Aðrar helstu breytingar eru að nú er heimilt að hafa 20 starfsmenn saman í rými og þeim er heimilt að fara á milli hópa. Ef ekki er unnt að tryggja 2 metra reglu innandyra ber þeim að nota grímur. Í sameiginlegum rýmum, m.a. mötuneytum verður heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun, að því gefnu að starfsfólk noti grímur. Þessar reglur gilda einnig um frístundaheimili, skipulagt íþrótta- æskulýðs- og tómstundastarf og um störf í félagsmiðstöðvum. Við förum áfram varlega og hugum vel að hreinlæti og persónulegum sóttvörnum. Áfram verður mikilvægt fyrir okkur öll, börn og fullorðna, að mæta ekki í skólann með flensulík einkenni og aðgengi foreldra og annarra aðstandenda þarf eftir sem áður að vera takmarkað. Starfsmenn Njarðvíkurskóla þakka samstarfið á árinu sem er að líða og óska öllum farsældar á nýju ári.
Lesa meira

Jóla- og nýárskveðja

Starfsfólk Njarðvíkurskóla sendir nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans bestu jóla- og nýárskveðjur, með þökk fyrir samfylgdina á árinu 2020. Kennsla í Njarðvíkurskóla hefst aftur eftir jólaleyfi mánudaginn 4. janúar. Skipulag skólastarfs á nýju ári er ekki alveg ljóst þar sem núverandi reglur um sóttvarnir í grunnskólum gilda til 31. desember. Við upplýsum foreldra/forráðamenn með breytingar eins fljótt og mögulegt er.
Lesa meira

Föndurdagur í Njarðvíkurskóla

Á aðventunni er hefð fyrir því að nemendur og starfsfólk Njarðvíkurskóla geri sér glaðan dag og föndri saman. Það er mikilvægt að brjóta upp hefðbundið skólastarf, ekki síst á tímum líkt og við búum við í dag. Í dag mánudaginn 14.desember var jólaföndursdagur og voru nemendur duglegir að föndra og skapaðist góð stemning líkt og má sjá á meðfylgjandi myndum.
Lesa meira